Saturday, February 25, 2006

Partyið í gær var snilld! :D
Stelpurnar komu (Valgerður, Björg og Dísa)... ég og Bryndís náðum í þær á Hovedbanegarden og svo röltum við aftur heim til mín. Vorum mjög rólegar fyrst, sátumst bara inní eldhús og byrjuðum aðeins að drekka og borða snakk og tala saman. Svo drukkum við bara meira og svo komu Helgi, Doddi og Kobbi.
Hef ekki mikið annað að segja um þetta. Þetta var samt geðveikt. Við hlóum alveg helling og töluðum um allt. Ætluðum alltaf í bæinn en vorum siðan bara allan tímann hjá mér. Stelpurnar drápust á einhverjum tímapunkti og ég endaði í partyi ein með strákunum heima hjá Helga. Var á hálfgerðu trúnó með Kobba og svo fór ég bara aftur heim. Var svo að reyna að leita mér að plássi til að sofa og fór í sófann inní herberginu hjá konunni sem ég leigji hjá því hún var ekki heima. Svo um leið og ég var lögst niður þá hringdi Haukur (um svona 7 leytið) þannig að ég rölti að sækja hann á lestarstöðina. Geðveikt gaman að hitta hann :) ..svo röltum við heim og ég, Haukur og Valgerður sátum í svona 2 tíma inní eldhúsi að tala saman og svo ákvað ég að stela plássinu hennar Valgerðar og lagði mig i nokkra tíma...
Þetta er það helsta.. Nenni eigilega ekki að skrifa neitt nákvæmari frásögn af því eg er að fara á Depeche Mode tónleika núna :D

Luv
Birgitta ;*

Thursday, February 23, 2006

Ég fékk vinnuna í Zöru í dag! JEI!! :D
Byrja á mánudaginn og hlakka ekkert smá til :)

She is so pretty... you just gotta love her :)

Wednesday, February 22, 2006

Ég var að fá helling af sjónvarpsstöðvum í dag. Allar mjög góðar. Mig vantar reyndar fjarstýringu til að setja fleiri inn. Vona að ég finni hana einhversstaðar einn daginn...
Það sem ég vildi samt aðallega segja er að auglýsingarnar hérna eru fáránlegar.. virkilega steiktar og fyndnar! Verð að reyna að finna einhverjar á netinu. Þær sem mér finnst samt fáránlegastar hingað til eru ein Gajol auglýsing og svo auglýsing fyrir Gulu síðurnar. Ef þið finnið þær á netinu á undan mér, endilega látið mig þá vita :)

Atvinnuviðtalið svo í fyrramálið.. er pínu stressuð en það verður bara gaman að vakna, fara á kaffihús og fá sér rúnstykki og latte og fara svo í viðtalið :)

Birgitta ;*

Tuesday, February 21, 2006

Ég fékk símhringingu í hádeginu..
Hef aldrei verið ánægðari með eitt símtal! Ég á að koma í atvinnuviðtal á fimmtudaginn í Zöru á Strikinu. Vá hvað ég hlakka til bæði að fara í viðtalið og bara að byrja loksins að vinna. Þið trúið því varla..
Þannig að ég vona bara það besta með fimmtudaginn. Það verður gott að koma svefninum á réttan kjöl aftur og fara að vakna og sofa á eðlilegum tíma :)

Annars á laugardaginn héldum við Bryndís matarboð fyrir Helga og Bjössa. Við ákváðum að elda lasagna. Það heppnaðist rosalega vel verð ég að segja. Það var samt svo mikið að það er hálft lasagniað ennþá inní ísskáp. Plana að borða e-ð af því í kvöld. En það er bara ekkert nema gott :)
Já, svo vorum við bara drekkandi helling af hvítvíni og rauðvíni og reyktum vindla og dönsuðum inni í herberginu mínu. E-ð eftir 12, 1 eða 2 (man það ekki) ákváðum við að skella okkur í bæinn. Staðirnir hérna eru samt ekki svona "á Laugaveginum" og í nágrenni hans heldur út um allt! ..og strákarnir völdu e-rn stað sem var eigilega eins og bara e-ð heimili með feitu partyi. Verð að segja að mér fannst frekar skrýtið fólk þarna inni og svo var þetta á einhverjum þrem hæðum og allt mjög spes. Við allavega byrjuðum neðst og færðum okkur svo efst og ég dansaði og dansaði og dansaði allt kvöldið. Ég fór ekki einu sinni á barinn (var reyndar líka bara með kort og þau tóku ekki kort) en ég var bara mjög ánægð að halda mér frá skotunum svona einu sinni :)
Svo bara klukkan e-ð ákvað Bryndís að fara á annan stað en ég nennti ekki þannig að ég bara dansaði með strákunum í svona hálftíma og fór svo bara heim.. Mjög gott kvöld :D
Þetta kvöld sagði einmitt Cathrine (leigjandinn minn) að ég mætti halda party næsta föstudag af því hún væri að fara að hitta foreldra sína (minnir mig) þannig að næsta helgi verður crazy!
Á föstudeginum verður þetta bara litla party sem Björg, Dísa, Valgerður, Helgi, Bjössi, Doddi, Kobbi og Bryndís mæta í (held ég allavegana) og svo örugglega bara bærinn (ef ég verð ekki að vinna daginn eftir). Svo á laugardeginum eru náttla Depeche mode tónleikarnir sem ég er búin að vera að bíða lengi eftir :) ..það verður víst fyrir og eftir party heima hjá Helga og Bjössa það kvöld. Get ekki sagt annað en að mig hlakki virkilega til helgarinnar :)

Annars er ekkert mikið meira þannig séð búið að gerast.. bara rólegheit, videogláp og svona.. dvd diskar eru svo ódýrir hérna (alltaf endalus tilboð) þannig að ég er að verða komin með ágætis safn :)

Er ekki ennþá búin að fá pakka sem mamma sendi (bara annan þeirra) en fyrri pakkinn endaði víst á e-ju pósthúsi sem ég er að pæla í að rölta bara á núna og sækja. Ömurleg þjónusta hérna hjá póstinum.

Til hamingju svo með Silviu Nótt. Ég er mjög ánægð að hún sé að fara til Aþenu. Hrista aðeins upp í þessu liði!! ... :)

Luv
Birgitta ;*

Wednesday, February 15, 2006

4 4 4 4 4

**Fjögur störf sem ég hef unnið um æfina**

-Barþjónn á Kaffibarnum
-Símadama hjá Já (118/1811)
-Afgreiða, Gull & silfursmiðjan Erna
-Afgreiðslu og smurbrauðsdama, Tíu dropar

**Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft aftur og aftur á**

-Zoolander
-Amelié
-Austin Powers
-Fight Club

**Fjórir staðir sem ég hef búið á**

-Danmörk
-Grafarvogur
-Vesturbærinn
-Kaffibarinn

**Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar**

-Family guy
-Simpsons
-Friends
-Desperate Housewives

**Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum**

-Danmörk
-Mallorca
-Holland
-Finland

**Fjórar heimasíður sem ég skoða daglega fyrir utan blog**

-myspace.com
-mbl.is
-google.com
-aol.dk

**Fjórar bækur sem ég les oft**

-How to make love like a porn star
-Ljóðabókin
-You are what you eat
-Vogue :)

**Fjórir aðilar sem ég skora á að gera þetta**

-Helga
-Bryndís
-Björg
-Haukur

Tuesday, February 14, 2006

Vildi bara óska ykkur öllum til hamingju með daginn. Hef reyndar aldrei fílað þennan dag neitt en hann er ágætlega hátíðlegur hérna í Danmörku svo hann getur eigilega ekki farið fram hjá manni...
Vona að þið eigið fallegan og rómantískan dag :)



Var í smá klippingu í dag hjá þessum æðislega sæta homma á einhverri mega fínni hárgreiðslustofu. Hann heitir Benjamin (sem ég vil helst bera fram með brjálæðslega frönskum hreim "Bendzjaman" eða e-ð þannig). Ég átti að segja öllum sem ég þekkti frá honum og hvað hann væri klár. Yndislegur maður og ógissslega hress... :)

Annars var ég að blogga hérna rétt fyrir neðan um það sem hefur á daga mína drifið hérna í Danmörku. Það er bara hérna beint á eftir þessum fallega lista sem er beint fyrir neðan þetta blogg.. bara svo þið vitið af því ;)

Birgitta ;*

Solarhringurinn minn er i fokki

Ég get ekki sofnað. Klukkan er orðin hálf 5. En það er allt í lagi þessa einu nótt því ég er að laga sólarhringinn minn. Vonum að hann lagist eitthvað núna.
En já ég var semsagt að vafra á netinu og fann þetta dót. Ákvað bara að skella þessu inná bloggið mitt og fara bara svo að sofa :)

(x) reykt sígarettu
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
(x) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum.
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
( ) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
( ) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
( x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) lent í bílslysi
(x) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) verið með spangir/góm
(x) fundist þú líta vel út
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
( ) dansað í tunglskininu
( ) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
(x) verið gagntekin/n af post-it miðum
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
( ) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

Monday, February 13, 2006

Jæja... sætu baunir.. nei danir eru víst baunir.. hvað eru Íslendingar eigilega??

Björg var að segja mér að fara að blogga!

Var alltaf á leiðinni en endaði alltaf á að fara að gera e-ð annað...

Anyway... Það er búið að vera alveg nóg að gera síðan ég kom. Næstum komnar þrjár vikur núna.
Um seinustu helgi, á föstudeginum, var hörku hvítvíns fylleri hjá mér og Bryndísi. Hittum svo Helga Gunnar og Bjössa, vin hans sem voru að djamma rétt hjá þar sem Bryndís býr og fórum saman öll í bæinn.
Á laugardeginum fór ég til Humlebæk þar sem Björg, Dísa og Valgerður eru í skóla. Tók í fyrsta skipti lest alein eitthvert sem ég vissi ekkert hvar var :) en svo tóku stelpurnar á móti mér sem var mjög gott.. hef aldrei verið svona fegin að sjá einhvern á ævinni held ég..
Löbbuðum svo í átt að skólanum.. þurftum að fara í gegnum þennan svaka scary skóg. Tók samt voða lítið eftir því hvað hann var scary því það var svo helvíti sleipt. Eina sem ég gat hugsað um var að detta ekki.
Komum svo í skólann og stelpurnar sýndu mér allt þar. Ótrúlega flottur og kósy skóli. Svo fékk ég smá kynningu á krökkunum inní herberginu þeirra (voru með svona bækling)...
Svo bara byrjaði fjörið.... ef bjór kostar bara 50 krónur þá hættiru sko ekki að drekka!!
Það var brjálað ball fram á nótt og við stelpurnar dönsuðum allan tímann.. Get varla lýst því hversu gaman það var að koma þangað og hitta þær og alla þarna.. Veit bara að ég ætla pott þétt þangað aftur :D

Svo leið bara venjulega vika.. allir í skólanum. Ég flutti bara í rólegheitunum á mánudeginum og kom mér vel fyrir. Þetta herbergi er draumur. Svo er konan sem ég bý hjá, Cathrine, alveg æðisleg.. gæti ekki verið heppnari!
Eyddi mestum tíma bara inni í herberginu mínu, á kaffihúsum og á Strikinu...
Held já að ég hafi gert lítið annað..
Ég allavega rata mjög vel um allt hérna núna. Finnst líka svo gott að geta bara farið út, rölt í 5 mínútur og vera komin á Strikið og skoðað mig um þar.. skoðað allar hliðargöturnar og allt.. og náttla kaffihúsin :)
Annars vonast ég til að heyra í konu á morgun í sambandi við vinnu. Finnst þetta vera komið of langt frí núna. Get varla beðið eftir að byrja að vinna. Maður verður bara latari ef maður er ekki að gera neitt.

Núna á laugardaginn var svo hið árlega þorrablót Íslendinga hérna í Köben. (Fokking fluga að bögga mig hérna)..
Það var haldið í sal sem er hjá Tivoliinu. Mjög flottur salur. Bryndis var að vinna og kom svo til mín eftir það og við fengum okkur hvítvín. Helgi og Bjössi komu svo um hálf tólf ásamt tveim stelpum sem ég veit eigilega ekkert hverjar eru en voru mjög nice. Stoppuðu hérna í smá stund og svo ákváðum við að rölta af stað. (Tivoliið hérna rétt hjá mér náttla - fullkomið)...
Ballið nefnilega byrjaði klukkan 11 en gat bara verið til 2, þannig að maður átti að mæta á réttum tíma..
Svo kom maður inn, hengdi upp jakkann sinn og gekk svo á efri hæðina þar sem dansgólfið var. Hvorki meira né minna en 600 Íslendingar voru saman komnir þarna sem var virkilega gaman.
Fullt af fólki sem var í Kvennó, svo Björg, Valgerður og Dísa, krakkarnir úr skólanum þeirra og bara endalaust fleira fólk.
Ég dansaði allt kvöldið, mest með Valgerði held ég og skemmti mér bara konunglega! Sixties var að spila og þeir eru bara nokkuð nettir á því ;)

Svo kom bara skemmtilegur þynnku sunnudagur.. kaffihús og smá videogláp og núna er mánudagur sem fer samt alveg að enda.

Þetta er svona það helsta sem hefur á mína daga drifið...

Ég og Bryndís fórum reyndar í matarboð til Helga og Bjössa fimmtudaginn fyrir einni og hálfri viku. Þeir elduðu handa okkur unaðslegan kjúkling með kartöflum, gulrótum og auðvitað sósu.
Erum ekki enn búin að ákveða hvenær þeir koma í matarboð til okkar en það verður samt núna á næstu vikum. Hlakka mikið til að elda e-ð gott og drekka vín og svona með :)

Svo eru allir að koma hingað um páskana.. eða bara í apríl. Það verður svo æðislegt! Hlakka ekkert smá til að sjá alla.
Er svo búin að ákveða að fara ekki sem au-pair til Ítalíu heldur bara að kíkja þangað og til Monaco í svona viku eða 10 daga. Ætla bara að vera hérna í sumar og vinna vonandi e-ð og bara hafa það gott.

Ætla svo ekki að lofa neinu með aktívt blogg hér eftir en ég vil nú samt skrifa um svona helstu atburðina.. bara fyrir sjálfa mig og kannski ykkur heima ef þið lesið þetta.. :)
Er samt drullu fegin að hafa drifið mig í að skrifa þetta.. Hefði ekki mátt geyma það mikið lengur ;)

Ætla að fara að horfa á Amelié núna... hún er svo æðisleg...

Birgitta ;*