Tuesday, February 14, 2006

Vildi bara óska ykkur öllum til hamingju með daginn. Hef reyndar aldrei fílað þennan dag neitt en hann er ágætlega hátíðlegur hérna í Danmörku svo hann getur eigilega ekki farið fram hjá manni...
Vona að þið eigið fallegan og rómantískan dag :)



Var í smá klippingu í dag hjá þessum æðislega sæta homma á einhverri mega fínni hárgreiðslustofu. Hann heitir Benjamin (sem ég vil helst bera fram með brjálæðslega frönskum hreim "Bendzjaman" eða e-ð þannig). Ég átti að segja öllum sem ég þekkti frá honum og hvað hann væri klár. Yndislegur maður og ógissslega hress... :)

Annars var ég að blogga hérna rétt fyrir neðan um það sem hefur á daga mína drifið hérna í Danmörku. Það er bara hérna beint á eftir þessum fallega lista sem er beint fyrir neðan þetta blogg.. bara svo þið vitið af því ;)

Birgitta ;*

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Valentínusar-, bónda- og konudagarnir eru ekki skemmtilegir fyrir einhleypt fólk..finnst mér allavega...en skemmtu þér geggjað vel, gaman að lesa bloggið þitt! ;)

4:24 PM  
Blogger Steini said...

hehe sammála þér kristjana

4:27 PM  
Blogger Steini said...

og já.. happy valentines day stelpur!!

4:27 PM  
Blogger Maze said...

Valentínusardagurinn er nú ekki svo hátíðlegur hérna að ég gráti mig í svefn. Annars er ég önnum kafinn við að sortéra valentínusarbréfin í "opna" og "ekki opna". Lyktin skiptir miklu máli stelpur, líka ef það er varalitur, það er mjög töff.

5:50 PM  
Blogger Birgitta Lind said...

Takk takk Kristjana og Steini ;*
..og já ég er alveg sammála þér Kristjana!

Reyndar þegar ég "lærði" að Valentínusardagurinn væri líka bara vinadagur, þ.e. þú átt ekki bara að gefa elskunni þinn heldur bara einhverjum sem þér þykir vænt um þá hljómar hann ekkert eins leiðinlega.

Annars fæ ég aldrei neina pakka eða kort á þessum dögum... :/
Það er eins gott að mitt bréf flokkist sem "opna" Mási.. minnir meira að segja að ég hafi sett varalit þannig að já ég ætti að vera örugg ;)

8:24 PM  

Post a Comment

<< Home