Monday, October 31, 2005

Staffadjamm

Úff.... var í brjáluðu staffapartyi í gær. Ókeypis áfengi og ég varð dáldið helluð. Mjöög gaman.
Sit núna á Kaffibarnum, pínu þunn og rosalega svöng en ég veit ekkert hvað mig langar í að borða...
Þetta var samt eitt af skemmtilegustu partyum sem ég hef farið í í langan tíma. Mætti þangað um hálf tíu leytið. Þá voru flestir mættir. Mér var strax réttur einn bjór og var svona hálf ákveðin í að vera bara róleg. Það plan misheppnaðist samt.
Fór að ræða við Vio um ýmsa hluti og við byrjuðum að tala e-ð um strákamál svo við færðum okkur inn í eldhús til að vera meira private. Töluðum um svoleiðis stöff í svona korter eða þangað til að Hákon kom til okkar. Þá fórum við alveg yfir í typpa og kynlífs umræður. Mjög áhugavert. Eftir stutta stund fórum við svo í þann skemmtilega leik "Ég hef aldrei" og ég ætla bara að segja að fólkið þarna er ekkert mjög saklaust..sem örugglega flestir mundu giska á.
Svo fór Vio með mig og Hákon í eitthvað svona test, sálfræði test. Útkoman var frekar fyndin. Ég dey víst, hrædd, einmana og með innilokunarkennd..ekki mjög spennandi. Kynlífið mitt er djúpt, kalt og fallegt (sem btw ég er ekki sammála, allavega ekki kalda hlutanum) og mér finnst fólk vera grimmt, fallegt og appelsínugult.
Já, svo var ferðinni heitið á Sirkus, eftir að hafa drukkið slatta af hvítvíni úr bjórkrús (mjög aðlaðandi). Á Sirkus var frekar lítil stemmning. Ákváðum þá að fara á Culturu og á leiðinn þangað datt ég feitast á rassinn. Strákarnir hjálpuðu mér upp og kenndu mér að ganga á svellinu. Cultura var lokuð þannig að næsta stopp var náttla Kaffibarinn. Ágætis stemmning þar. Vorum þar í svona hálftíma eða til lokunar. Fórum þá aftur í partyið og þar sat ég að tala við Baldvin í svona 4 tíma um allt milli himins og jarðar og ákvað svo að rölta heim. Náði að hella niður bjórnum mínum á leiðinni út og svo á leiðinni heim datt ég aftur á rassinn. Mögulega datt ég tvisvar því ég er með óskiljanlegt sár bæði á hnénu og lófanum.
Sem sagt í heildina litið gott party fyrir utan nokkur óhöpp.
Fyrir utan gærkvöldið hefur ekkert merkilegt á daga mína drifið. Einungis vinna og afslöppun. Vona að ég fá mikið útborgað á morgun....
Alltílagiblessbless..

Birgitta ;*

Thursday, October 20, 2005

Girl power og Airwaves

Til hamingju stelpur með Kvennafrídaginn í gær :D

Við Ásta fórum í gönguna í gær. Við stimpluðum okkur út akkurat á slaginu 14:08. Það var dámsamleg tilfinning. ;)

Annars var helgin fín. Eins og flestir vita var airwaves í gangi.
Eina sem hægt er að setja útá voru biðraðirnar. Þær voru ekki eðlilegar. Röðin t.d á laugardeginum á Nasa, náði frá dyrunum alveg að Alþingishúsinu. Ég hafði ætlað mér að mæta strax á Nasa kl. 8 en var í afmæli til ca. 10. Þar af leiðandi beið ég í röð í, jamm, tæpan 2 og hálfan tíma. Náði restinni af Ratatat og svo Gus Gus sem var eigilega toppurinn fannst mér. Afmælið var líka frábært. Við fórum allar stelpurnar út að borða á Caruso. Mjög kósy.

Mér fannst Annie æðisleg. Hún spilaði á miðnætti á miðvikudeginum. Röðin inn á hana var reyndar rosa löng líka en ég lét mig hafa það. Sá líka Hölt Hóra sem voru mjöög góðir, Juliette & the Licks sem voru svona bara allt í lagi (hún hefði mátt rokka meira) og nokkur önnur bönd. Hefði viljað sjá fleiri hljómsveitir en vegna vinnu, raða og afmælis tókst mér það því miður ekki.
Á föstudeginum, eftir Hafnarhúsið, voru svo líka bræðurnir Heimir & Baldur að dj-a á Culturu. Þeir héldu stuðinu uppi fram á nótt.. Vorum öll þar vinirnir að dansa á fullu og ég skemmti mér meeega vel :)

Helgin semsagt í heild heppnaðist bara mjög vel og ég er mjög sátt þrátt fyrir smá erfiðleika með raðir. Hafði samt sem betur fer bróðir minn til að tala við í röðinni þó hann hafi á tímapunkti bara farið í taugarnar á mér vegna munnræpu. Hann var náttla smá drukkinn og talar þá mjög mikið. Það hjálpaði mér samt bara að haldast í röðinni. Var virkilega farin að hugsa um rúmið mitt og sængina mína... skil eigilega bara ekkert hvernig við entumst svona lengi í röðinni...

>>>Áfram stelpur ;*

Monday, October 17, 2005

Kraftaverk

Tíkin mín hún Kata var að gjóta. Úr gotinu komu tveir hvolpar en annar þeirra dó. Þannig að eftir er einn fallegur hvolpur sem gefur frá sér yndisleg og skemmtileg hljóð. Hann heitir ekkert ennþá en mikið var ég fegin að hann heitir ekki Beddi. Hélt nefnilega að mamma hefði kallað hann það og fékk vægt sjokk. ugh. Ég persónulega hefði viljað fleiri hvolpa. En maður fær ekki allt sem maður vill. Eitt lærði ég á þessu, að hvolpar fæðast með svona himnupoka utan um sig. Það er mjög skrítið að sjá það. Svo þegar þeir eru komnir alveg út úr leginu þá rífur maður gat á pokann og tíkin étur allt og þrífur hvolpinn. Pínu sætt en samt meira svona oj.
Hérna er ein mynd af dúllunni..


Ég sit núna, kl. að ganga 6 um morgunn, ein inn í gamla herberginu mínu heima hjá mömmu að vakta hvolpinn og Kötu. Það er svo sætt að sjá Kötu í móðurhlutverkinu. Mér sýnist hún elska það. Við vildum vakta eða hafa auga með gotinu því þessi eini hvolpur er rosalega verðmætur. Þetta er eðalrræktaður veiðhundur. Benjamín er pabbinn. Hann er margverðlaunaður gulur labrador, ræktaður og fæddur í Amríkunni. Voða svalur. Kata hins vegar er svört, lítil, nett og falleg, líka labrador og er einnig margverðlaunaður veiðihundur. Þess vegna eru viss vonbrigði að það kom bara einn. Hann er samt gull. Þannig að ég er glöð. Hitastigið inní þessu herbergi er óeðlilega hátt. Mér finnst það reyndar pínu notalegt en sumir kvarta. Nee, kvarta kannski ekki en fara samt fram að kæla sig aðeins. Það finnst mér reyndar þægilegt af og til. Lífsnauðsynlegt held ég.

Annars var laugardagskvöldið mjög skemmtilegt. Ég og Ásta vorum að vinna til miðnættis og fórum svo heim að skipta um föt og drekka. Helga og Dísa komu líka og við dönsuðum og tókum myndir. Svo var haldið í bæinn á Culturu. Heimir og Siggi (Karíus & Svefninn) voru nebbla að dj-a. Þar var mega stuð. Svo fórum ég og Ásta aðeins yfir á Kaffibarinn. Þar var alveg ágætt. Lenti reyndar í mjög skrítnu dæmi í lokin. Stóð og var að tala við vin minn Frosta, sem vinnur í dyrunum á kb og allt í einu kemur strákur/maður sem ég þekki mjög persónulega og opnar hurðina og hendir mér út. Ég kastast semsagt bara eitthvað út og ligg á jörðinni upp við bíl sem var lagður fyrir utan. Mjög súrt dæmi og alveg að ástæðulausu!?! Það varð náttla allt brjálað og viðkomandi var hent út af staðnum. Lenti svo á trúnó með Ernu (Orðlaus) sem er ein yndislegasta manneskja sem ég veit um. Við semsagt spjölluðum um allt milli himins og jarðar og hlóum helling saman. Gaman gaman. Hún er að læra að fljúga og hún gaf mér gott ráð sem ég held að ég ætli að fara pínu eftir. Mér finnst hún töffari. Jábbs...

Hef ekkert meira að og er núna virkilega að kafna úr hita. Ætla fram að kæla mig smá.

B ;*

Saturday, October 15, 2005

Aukamyndasíða

Við erum komnar með aukamyndasíðu þangað til við fáum meira pláss á hinni..
Linkurinn er:
http://photobucket.com/albums/a301/attigrib/?action=options

enjoy
Á & B

Thursday, October 13, 2005

Gull af konu..

Heyrði eitt fallegt í vinnunni í dag. Maður sem var að leita að numeri í Bandaríkjunum. Ég fann þa auðvitað fyrir hann og hann sagði að ég væri "gull af konu". Mér hlýnaði alveg niður í hjartarætur. Svona orðalag lætur örugglega öllum konum líða vel allan daginn og ekkert getur komið þeim úr jafnvægi :) ..munið þetta næst ef þið fáið góða aðstoð einhversstaðar að hóla þeim aðila svona fallega.

Annars var ég klukkuð af Steina og neyðist því til að skrifa hérna 5 staðreyndir um mig..heheh:)

#1 Ég elska skegg. Þegar menn eru komnir með svona eins til þriggja daga skeggrót. Alls ekki svona jólasveina skegg, ekki misskilja mig.

#2 Ég elska föt og skó. Mér finnst æðislegt að fara út í búð og kaupa mér eitt fallegt skópar. Svo elska ég líka allt sem er með einhverju glimmer eða pallíettum í, aðallega boli þá. Einnig elska ég eyrnalokka, armbönd, fallegar töskur og pelsa. Reyni samt helst að verzla þannig dót á mörkuðum eða í second hand búðum, mér leiðast búðir eins og 17.

#3 Ég og pabbi erum frábærir vinir. Þegar ég var 6 ára skildu mamma og pabbi. Þó það kallist nú varla merkilegt í dag, að foreldrar skilji þá fékk ég ekki að hitta hann í 8 ár, eða þangað til ég var 14 ára. Frá og með þeim degi ákvað ég að láta eins og ég hefði hitt hann á hverjum einasta degi og ákvað að kalla hann pabba og vera ekkert feimin við hann. Í dag eru 6 ár síðan það var og við erum beztu vinir í dag. Hann er hress gaur, drekkur ekki og mætir oftar en ekki í partyin til mín og Ástu og fær að stjórna tónlistinni. Hann hefur hjálpað mér að skilja og meta lífið á annan og betri hátt og ég gæti ekki beðið hann um meira né betra en það.

#4 Ég elska að eiga tíma fyrir sjálfa mig. Reyni alltaf að eiga þannig stund á hverjum degi, þó að það sé bara ræktin eða jafnvel ekki nema það að bera á mig krem eða nota andlitsmaska.
Bezt finnst mér þó að setjast í ró og næði inn á kaffihús, fá mér kaffibolla helst þá cafe latte, hlusta á tónlist, lesa blöðin eða hanga í tölvunni og vafra um á netinu.

#5 Ég elska bæði tónlist og dans. Það meikar sens því tónlist og dans fylgjast að.
Ég byrjaði að æfa dans um 3 ára aldur með frænda mínum, samkvæmisdansa en hætti í þeim þegar ég var 6 ára því ég þorði ekki að dansa með öðrum strák. Var mjög hrædd við stráka á þessum aldri. Þá byrjaði ég í jazzballett og stundaði það þangað til ég var 17 ára. Síðan þá er ég búin að taka mér (of) langa pásu og er ég því komin með vott af fráhvarfseinkennum. Hef bara stundað ræktina á meðan. Ég hygg þó á það að byrja í magadansi annaðhvort úti á Ítalíu eða þegar ég byrja í háskólanum næsta haust. Ástæðan fyrir því að ég er ekki byrjuð í magadansi er sú að mamma var hrædd um að ég yrði ólétt og ég vildi ekki gera alveg út af við hana og mér fannst það reyndar alveg rétt af henni að vera hrædd því ég vildi sjálf ekki enda ólétt og í sambúð 18 eða 19 ára. Ef ekki væri fyrir bæði dans og tónlist þá væri ég örugglega dauð núna eða inná geðdeild. :)

..ég klukka:
Helgu - http://helgamaria.blogspot.com
Björgu - http://bjorgg.blogspot.com
Ástu - http://astaogbirgitta.blogspot.com
Elín - http://kuntur.blogspot.com
Bryndísi - http://blog.central.is/theboobies/

crazy stelpukvöld núna - koddaslagur, ljósblámynd og popp..

out

les gyltes...


Bara til að deila því með ykkur gyltunum erum við jákvæðu símamærnar á leiðinni í hádegismat og á þessum fallega fimmtudegi er boðið upp á ekkert annað en kjúkling og franskar!! mmm...
þar sem við borðum oft glæsilega máltíð hjá já/símanum var áætlunin að borða létt á kvöldin... það plan hefur ekki gengið eftir og borðum við eins og sönnum gyltum sæmir!!
Húrra og amen fyrir átvöglum og gyltum ;)
:Out To Lunch

Wednesday, October 12, 2005

Var að koma heim úr vinnunni og kl. er rúmlega 2. Var að vinna á Kaffibarnum. Þetta var ágætt kvöld, DJ Balli var að spila og Helga og Hera komu í heimsókn til mín :)
Annars var það nú ekki það sem mig langaði að skrifa heldur það hvað var gott að labba heim. Gekk Laugaveginn sem var alveg tómur. Mér fannst það eitthvað svo fallegt, hann var eitthvað svo fallegur. Mér þykir svo vænt um Laugaveginnn. Á leiðinni þá snjóaði og ég er ekki, því miður, manneskja sem líkar mjög vel við snjóinn. En þessi snjór var öðruvísi, hann var svo saklaus og góður, ekki svona kaldur og óþægiegur..já, mér þykir vænt um þennan fyrsta snjó vetrarins, að minnsta kosti sá fyrsti sem fellur á mig.
Það gerðist nú annars ekkert annað merkilegt í dag, né kvöld né á leiðinni heim.. mig langar dáldið að það gerist nú bráðum eitthvað merkilegt fyrir mig. Langar að lenda í einhverjum ævintýrum. Kannski gerast þau samt bara í vinnunni þessa dagana eins og þegar menn biðja mann um að giftast sér eða kalla börnin sín mjög ljótum nöfnum, hrikalegt að hlusta á svoleiðis..kalla það samt alls ekki ævintýri..langt frá því. Bíð bara eftir að komast til Ítalíu og upplifa eitthvað nýtt. En ég veit samt að Ísland er alltaf best :) ..jamm, langaði bara að deila þessu með ykkur, ætla að fara að sofa núna.
Góða nótt
B;*

Tuesday, October 11, 2005

Jæja..
Við erum eigilega alltof latar að skrifa..því miður.Ástæðan gæti samt verið sú að fátt merkilegt gerist hjá okkur. Við vinnum flesta daga, tökum til og svo mætir Ásta í píanó einu sinni í viku og ég mæti í ítölsku líka einu sinni í viku.Við horfum samt líka smá á sjónvarpið, sem er laumulega gaman. Sérstaklega svona þættir eins og The Cut, So You Think You Can Dance og auðvitað America´s Next Top Model.

Annars er airwaves á næsta leiti og það verður örugglega geggjuð helgi ..þó við séum nú frekar ósáttar með að Annie spili á miðnætti á miðvikudagskvöldið-föttum það sko ekki alveg, en annars lítur þetta nú mjög vel út.Föstudagskvöldið lítur samt út fyrir að verða skemmtilegast.Svo eru væntanlegar myndir innan skamms.. þær áttu að koma í gær en það kom dáldið uppá þannig að við vonumst til að geta sett þær inn von bráðar.

Thursday, October 06, 2005

Oktoberfest á dag og á morgun upp í háskóla..ódýr bjór sem er ekki hægt að missa af..Svo eru það tónleikar á Dillon á föstudaginn, Hölt Hóra og Dr. Spock..það verður örugglega allt brjálað þar og svo á laugardaginn er afmælið hjá Mása..loksins :)..frekar spennandi helgi.. og það toppar hana að við erum báðar í helgarfríi :D

outÁ&B ;*

Sunday, October 02, 2005

Ágætis helgi.. videogláp og smá djamm. Við erum sáttar :)