Ég fékk símhringingu í hádeginu..
Hef aldrei verið ánægðari með eitt símtal! Ég á að koma í atvinnuviðtal á fimmtudaginn í Zöru á Strikinu. Vá hvað ég hlakka til bæði að fara í viðtalið og bara að byrja loksins að vinna. Þið trúið því varla..
Þannig að ég vona bara það besta með fimmtudaginn. Það verður gott að koma svefninum á réttan kjöl aftur og fara að vakna og sofa á eðlilegum tíma :)
Annars á laugardaginn héldum við Bryndís matarboð fyrir Helga og Bjössa. Við ákváðum að elda lasagna. Það heppnaðist rosalega vel verð ég að segja. Það var samt svo mikið að það er hálft lasagniað ennþá inní ísskáp. Plana að borða e-ð af því í kvöld. En það er bara ekkert nema gott :)
Já, svo vorum við bara drekkandi helling af hvítvíni og rauðvíni og reyktum vindla og dönsuðum inni í herberginu mínu. E-ð eftir 12, 1 eða 2 (man það ekki) ákváðum við að skella okkur í bæinn. Staðirnir hérna eru samt ekki svona "á Laugaveginum" og í nágrenni hans heldur út um allt! ..og strákarnir völdu e-rn stað sem var eigilega eins og bara e-ð heimili með feitu partyi. Verð að segja að mér fannst frekar skrýtið fólk þarna inni og svo var þetta á einhverjum þrem hæðum og allt mjög spes. Við allavega byrjuðum neðst og færðum okkur svo efst og ég dansaði og dansaði og dansaði allt kvöldið. Ég fór ekki einu sinni á barinn (var reyndar líka bara með kort og þau tóku ekki kort) en ég var bara mjög ánægð að halda mér frá skotunum svona einu sinni :)
Svo bara klukkan e-ð ákvað Bryndís að fara á annan stað en ég nennti ekki þannig að ég bara dansaði með strákunum í svona hálftíma og fór svo bara heim.. Mjög gott kvöld :D
Þetta kvöld sagði einmitt Cathrine (leigjandinn minn) að ég mætti halda party næsta föstudag af því hún væri að fara að hitta foreldra sína (minnir mig) þannig að næsta helgi verður crazy!
Á föstudeginum verður þetta bara litla party sem Björg, Dísa, Valgerður, Helgi, Bjössi, Doddi, Kobbi og Bryndís mæta í (held ég allavegana) og svo örugglega bara bærinn (ef ég verð ekki að vinna daginn eftir). Svo á laugardeginum eru náttla Depeche mode tónleikarnir sem ég er búin að vera að bíða lengi eftir :) ..það verður víst fyrir og eftir party heima hjá Helga og Bjössa það kvöld. Get ekki sagt annað en að mig hlakki virkilega til helgarinnar :)
Annars er ekkert mikið meira þannig séð búið að gerast.. bara rólegheit, videogláp og svona.. dvd diskar eru svo ódýrir hérna (alltaf endalus tilboð) þannig að ég er að verða komin með ágætis safn :)
Er ekki ennþá búin að fá pakka sem mamma sendi (bara annan þeirra) en fyrri pakkinn endaði víst á e-ju pósthúsi sem ég er að pæla í að rölta bara á núna og sækja. Ömurleg þjónusta hérna hjá póstinum.
Til hamingju svo með Silviu Nótt. Ég er mjög ánægð að hún sé að fara til Aþenu. Hrista aðeins upp í þessu liði!! ... :)
Luv
Birgitta ;*

7 Comments:
Hljómar sem fjör sé í gangi,
btw, svo það sé á hreinu þá flippaði ég á þessu quizzi hjá þér, Björg, Dísa og Heimir fengu ekki svona lágt heldur var þetta einhver húmor hjá mér sem enginn tók eftir.
hehe.. Mási gódur! :)
En já ég er ad fara ad mæta i partýid! Loksins ordin gód eftir veikindin... svo eg verd ordin súpergód á föstudag! :D
En má kannski nokkrir fleirri bætast í hópinn í partýid!
Veit ad Jenni og Einar hafa áhuga???
Hehe :)
Ég var ekki að fatta það. Fannst einmitt soldið áhugavert hvað stelpurnar væru farnar að mig minna heldur en strákarnir :)
Sko, skal athuga það Björg.. ætla að ræða aðeins betur við hana um þetta fyrst. Mér finnst svo leiðinlegt að halda party og bara hellingur af fólki kemur (eins og einhverntímann á Hagamelnum) og svo er ég að halda party hérna í fyrsta skiptið þannig að ég þarf að stilla öllu í hóf með að bjóða. Nenni ekki að hafa allt skítugt og ógeðslegt daginn eftir.
Þetta átti að vera "farnar að þekkja mig minna heldur en strákarnir" :)
ég er í 3dja sæti :D
Já ég sá það.. það er hevy kúl! :D
Vá geðveikt..vona að þú fáir vinnuna og ég held að tónleikarnir eigi eftir að verða mjög góðir...væri alveg til í að fara á þá!;) og ég væri líka alveg til í að koma í partýið þitt..skelli mér bara í stutta helgarferð:)
Post a Comment
<< Home