Jæja... sætu baunir.. nei danir eru víst baunir.. hvað eru Íslendingar eigilega??
Björg var að segja mér að fara að blogga!
Var alltaf á leiðinni en endaði alltaf á að fara að gera e-ð annað...
Anyway... Það er búið að vera alveg nóg að gera síðan ég kom. Næstum komnar þrjár vikur núna.
Um seinustu helgi, á föstudeginum, var hörku hvítvíns fylleri hjá mér og Bryndísi. Hittum svo Helga Gunnar og Bjössa, vin hans sem voru að djamma rétt hjá þar sem Bryndís býr og fórum saman öll í bæinn.
Á laugardeginum fór ég til Humlebæk þar sem Björg, Dísa og Valgerður eru í skóla. Tók í fyrsta skipti lest alein eitthvert sem ég vissi ekkert hvar var :) en svo tóku stelpurnar á móti mér sem var mjög gott.. hef aldrei verið svona fegin að sjá einhvern á ævinni held ég..
Löbbuðum svo í átt að skólanum.. þurftum að fara í gegnum þennan svaka scary skóg. Tók samt voða lítið eftir því hvað hann var scary því það var svo helvíti sleipt. Eina sem ég gat hugsað um var að detta ekki.
Komum svo í skólann og stelpurnar sýndu mér allt þar. Ótrúlega flottur og kósy skóli. Svo fékk ég smá kynningu á krökkunum inní herberginu þeirra (voru með svona bækling)...
Svo bara byrjaði fjörið.... ef bjór kostar bara 50 krónur þá hættiru sko ekki að drekka!!
Það var brjálað ball fram á nótt og við stelpurnar dönsuðum allan tímann.. Get varla lýst því hversu gaman það var að koma þangað og hitta þær og alla þarna.. Veit bara að ég ætla pott þétt þangað aftur :D
Svo leið bara venjulega vika.. allir í skólanum. Ég flutti bara í rólegheitunum á mánudeginum og kom mér vel fyrir. Þetta herbergi er draumur. Svo er konan sem ég bý hjá, Cathrine, alveg æðisleg.. gæti ekki verið heppnari!
Eyddi mestum tíma bara inni í herberginu mínu, á kaffihúsum og á Strikinu...
Held já að ég hafi gert lítið annað..
Ég allavega rata mjög vel um allt hérna núna. Finnst líka svo gott að geta bara farið út, rölt í 5 mínútur og vera komin á Strikið og skoðað mig um þar.. skoðað allar hliðargöturnar og allt.. og náttla kaffihúsin :)
Annars vonast ég til að heyra í konu á morgun í sambandi við vinnu. Finnst þetta vera komið of langt frí núna. Get varla beðið eftir að byrja að vinna. Maður verður bara latari ef maður er ekki að gera neitt.
Núna á laugardaginn var svo hið árlega þorrablót Íslendinga hérna í Köben. (Fokking fluga að bögga mig hérna)..
Það var haldið í sal sem er hjá Tivoliinu. Mjög flottur salur. Bryndis var að vinna og kom svo til mín eftir það og við fengum okkur hvítvín. Helgi og Bjössi komu svo um hálf tólf ásamt tveim stelpum sem ég veit eigilega ekkert hverjar eru en voru mjög nice. Stoppuðu hérna í smá stund og svo ákváðum við að rölta af stað. (Tivoliið hérna rétt hjá mér náttla - fullkomið)...
Ballið nefnilega byrjaði klukkan 11 en gat bara verið til 2, þannig að maður átti að mæta á réttum tíma..
Svo kom maður inn, hengdi upp jakkann sinn og gekk svo á efri hæðina þar sem dansgólfið var. Hvorki meira né minna en 600 Íslendingar voru saman komnir þarna sem var virkilega gaman.
Fullt af fólki sem var í Kvennó, svo Björg, Valgerður og Dísa, krakkarnir úr skólanum þeirra og bara endalaust fleira fólk.
Ég dansaði allt kvöldið, mest með Valgerði held ég og skemmti mér bara konunglega! Sixties var að spila og þeir eru bara nokkuð nettir á því ;)
Svo kom bara skemmtilegur þynnku sunnudagur.. kaffihús og smá videogláp og núna er mánudagur sem fer samt alveg að enda.
Þetta er svona það helsta sem hefur á mína daga drifið...
Ég og Bryndís fórum reyndar í matarboð til Helga og Bjössa fimmtudaginn fyrir einni og hálfri viku. Þeir elduðu handa okkur unaðslegan kjúkling með kartöflum, gulrótum og auðvitað sósu.
Erum ekki enn búin að ákveða hvenær þeir koma í matarboð til okkar en það verður samt núna á næstu vikum. Hlakka mikið til að elda e-ð gott og drekka vín og svona með :)
Svo eru allir að koma hingað um páskana.. eða bara í apríl. Það verður svo æðislegt! Hlakka ekkert smá til að sjá alla.
Er svo búin að ákveða að fara ekki sem au-pair til Ítalíu heldur bara að kíkja þangað og til Monaco í svona viku eða 10 daga. Ætla bara að vera hérna í sumar og vinna vonandi e-ð og bara hafa það gott.
Ætla svo ekki að lofa neinu með aktívt blogg hér eftir en ég vil nú samt skrifa um svona helstu atburðina.. bara fyrir sjálfa mig og kannski ykkur heima ef þið lesið þetta.. :)
Er samt drullu fegin að hafa drifið mig í að skrifa þetta.. Hefði ekki mátt geyma það mikið lengur ;)
Ætla að fara að horfa á Amelié núna... hún er svo æðisleg...
Birgitta ;*

1 Comments:
Oh hvað það er pirrandi að blogga í tölvunni minni! Þið trúið því ekki.. ég giska á allt og vona bara að þetta postist..
Allavega, commentið þitt Mási, hvarf ;)
En takk samt eða e-ð.... :)
Post a Comment
<< Home