Thursday, December 29, 2005

Jæja elskurnar mínar.....

Vildi bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla (þeim sem ég er ekki búin að segja það við)
og svo gleðilegs nýs árs! ;*


Vona bara innilega að það náist að redda e-ju party á gamlárs eða allavega að við náum einhvernveginn öll að hittast og vera saman... svona rétt áður en allir fara sitt í hvora áttina aftur... :)
Allavega vona ég að þið hafið það samt öll gott um áramótin.. hvort sem ég hitti ykkur eða ekki :)

Kv. Birgitta ;*

Wednesday, December 21, 2005

LOL

Tékkiði á þessari síðu:
Hverjum líkist þú?

(ég er búin að fá Brigitte Bardot, Halle Berry og Audrey Tautou >> wtf??)

enjoy...

Saturday, December 17, 2005

Hóhóhó!





Það fer hver að verða síðastur að sjá íbúðina okkar á Ránargötu 9. Vinsamlegast boðið komu ykkar í síma 5617127. Flutningarnir eru áætlaðir á milli jóla og nýárs.
Annars er bara það sama að frétta. Vinna, sofa, borða og djamma.... allt nema að læra.. muhahaha.
Vonum að ykkur öllum hafi samt gengið vel í prófunum (og í þeim sem eftir eru).
Tékkið líka á þessum leik.. hann er awesome! >>Hangaroo

Vinnuslúður:

  • Við höfum enn ekki birst í Innlit/Útlit, fyrir þá sem hafa verið að bíða spenntir eftir því. Gerðum ráð fyrir því að við yrðum í sama þætti og Jónína nærbuxnalausa en því miður komumst við ekki að í þeim þætti.
  • Maður hringdi í 118 í dag í öngum sínum og bað um neyðarnúmer tannlækna. Ástæðan var sú að hann hafði misst út úr sér fölsku tennurnar sínur og þær hafa víst verið ómótstæðilegar í augum Snata, því hann var ekki lengi að ná þeim og háma þær í sig.*slef*. Ef þetta kallast ekki neið þá vitum við ekki hvað...
  • Litlu-jólin verða haldin þann 20. desember. Allir bíða spenntir eftir pakkanum sínum og starfsfólk talar ekki um annað þessa dagana....þótt það megi nú aldrei gleyma tíðarhvarfs umræðunum..

...já, þetta var það helsta :)

Annars viljum við bara segja gleðileg jól og Já- er svarið!...

Ásta og Birgitta jólastelpur ;*

Friday, December 16, 2005

Bitch-face-killer

Velkomin heim þið öll sem eruð komin heim :)
Unaðslegt að fá ykkur loksins hingað...
Takk fyrir síðast í partyinu hjá Árna.. brjálað party! ;D
Á annars að gera e-ð í kvöld... ??