Kraftaverk
Tíkin mín hún Kata var að gjóta. Úr gotinu komu tveir hvolpar en annar þeirra dó. Þannig að eftir er einn fallegur hvolpur sem gefur frá sér yndisleg og skemmtileg hljóð. Hann heitir ekkert ennþá en mikið var ég fegin að hann heitir ekki Beddi. Hélt nefnilega að mamma hefði kallað hann það og fékk vægt sjokk. ugh. Ég persónulega hefði viljað fleiri hvolpa. En maður fær ekki allt sem maður vill. Eitt lærði ég á þessu, að hvolpar fæðast með svona himnupoka utan um sig. Það er mjög skrítið að sjá það. Svo þegar þeir eru komnir alveg út úr leginu þá rífur maður gat á pokann og tíkin étur allt og þrífur hvolpinn. Pínu sætt en samt meira svona oj.
Hérna er ein mynd af dúllunni..

Ég sit núna, kl. að ganga 6 um morgunn, ein inn í gamla herberginu mínu heima hjá mömmu að vakta hvolpinn og Kötu. Það er svo sætt að sjá Kötu í móðurhlutverkinu. Mér sýnist hún elska það. Við vildum vakta eða hafa auga með gotinu því þessi eini hvolpur er rosalega verðmætur. Þetta er eðalrræktaður veiðhundur. Benjamín er pabbinn. Hann er margverðlaunaður gulur labrador, ræktaður og fæddur í Amríkunni. Voða svalur. Kata hins vegar er svört, lítil, nett og falleg, líka labrador og er einnig margverðlaunaður veiðihundur. Þess vegna eru viss vonbrigði að það kom bara einn. Hann er samt gull. Þannig að ég er glöð. Hitastigið inní þessu herbergi er óeðlilega hátt. Mér finnst það reyndar pínu notalegt en sumir kvarta. Nee, kvarta kannski ekki en fara samt fram að kæla sig aðeins. Það finnst mér reyndar þægilegt af og til. Lífsnauðsynlegt held ég.
Annars var laugardagskvöldið mjög skemmtilegt. Ég og Ásta vorum að vinna til miðnættis og fórum svo heim að skipta um föt og drekka. Helga og Dísa komu líka og við dönsuðum og tókum myndir. Svo var haldið í bæinn á Culturu. Heimir og Siggi (Karíus & Svefninn) voru nebbla að dj-a. Þar var mega stuð. Svo fórum ég og Ásta aðeins yfir á Kaffibarinn. Þar var alveg ágætt. Lenti reyndar í mjög skrítnu dæmi í lokin. Stóð og var að tala við vin minn Frosta, sem vinnur í dyrunum á kb og allt í einu kemur strákur/maður sem ég þekki mjög persónulega og opnar hurðina og hendir mér út. Ég kastast semsagt bara eitthvað út og ligg á jörðinni upp við bíl sem var lagður fyrir utan. Mjög súrt dæmi og alveg að ástæðulausu!?! Það varð náttla allt brjálað og viðkomandi var hent út af staðnum. Lenti svo á trúnó með Ernu (Orðlaus) sem er ein yndislegasta manneskja sem ég veit um. Við semsagt spjölluðum um allt milli himins og jarðar og hlóum helling saman. Gaman gaman. Hún er að læra að fljúga og hún gaf mér gott ráð sem ég held að ég ætli að fara pínu eftir. Mér finnst hún töffari. Jábbs...
Hef ekkert meira að og er núna virkilega að kafna úr hita. Ætla fram að kæla mig smá.
B ;*

9 Comments:
ussu sumir ákveðnir eru og munu alltaf vera aumingjar..
og til hamingju með hvolpinn..mér sýndist þú fyrst vera með krakka í fanginu..hehehehe..
til hamingju með hvolpinn! :) múisívúsívúsúvúsívúúú
Kenndi hún þér að blaka eyrunum?
Hvaða idiot var þetta sem henti þér út?
takk takk :) hann er svo sætur! :)jamm ,hún kenndi mér það. ætla bráðum að prufa að fljúga til útlanda :)dáldið svalt. já, það má kalla svona menn aumingja held ég...
aei krùtt!!! Til hamingju med hvolpana!!! :)
congrats med hvolpinn!
Ójá sumir ætla alltaf að vera aumingjar og og mega bara skríða upp í rassgatið á Saddam Hussein og vera þar........
Til hamingju með hvolpinn hann er ekkert smá adorable :*
Til lukku með litla krúttið, þú ert nú svolítið mömmuleg á myndinni :o)
takk :) hehe, mömmuleg.. takk fyrir það hulda mín :)
Post a Comment
<< Home