Thursday, October 13, 2005

Gull af konu..

Heyrði eitt fallegt í vinnunni í dag. Maður sem var að leita að numeri í Bandaríkjunum. Ég fann þa auðvitað fyrir hann og hann sagði að ég væri "gull af konu". Mér hlýnaði alveg niður í hjartarætur. Svona orðalag lætur örugglega öllum konum líða vel allan daginn og ekkert getur komið þeim úr jafnvægi :) ..munið þetta næst ef þið fáið góða aðstoð einhversstaðar að hóla þeim aðila svona fallega.

Annars var ég klukkuð af Steina og neyðist því til að skrifa hérna 5 staðreyndir um mig..heheh:)

#1 Ég elska skegg. Þegar menn eru komnir með svona eins til þriggja daga skeggrót. Alls ekki svona jólasveina skegg, ekki misskilja mig.

#2 Ég elska föt og skó. Mér finnst æðislegt að fara út í búð og kaupa mér eitt fallegt skópar. Svo elska ég líka allt sem er með einhverju glimmer eða pallíettum í, aðallega boli þá. Einnig elska ég eyrnalokka, armbönd, fallegar töskur og pelsa. Reyni samt helst að verzla þannig dót á mörkuðum eða í second hand búðum, mér leiðast búðir eins og 17.

#3 Ég og pabbi erum frábærir vinir. Þegar ég var 6 ára skildu mamma og pabbi. Þó það kallist nú varla merkilegt í dag, að foreldrar skilji þá fékk ég ekki að hitta hann í 8 ár, eða þangað til ég var 14 ára. Frá og með þeim degi ákvað ég að láta eins og ég hefði hitt hann á hverjum einasta degi og ákvað að kalla hann pabba og vera ekkert feimin við hann. Í dag eru 6 ár síðan það var og við erum beztu vinir í dag. Hann er hress gaur, drekkur ekki og mætir oftar en ekki í partyin til mín og Ástu og fær að stjórna tónlistinni. Hann hefur hjálpað mér að skilja og meta lífið á annan og betri hátt og ég gæti ekki beðið hann um meira né betra en það.

#4 Ég elska að eiga tíma fyrir sjálfa mig. Reyni alltaf að eiga þannig stund á hverjum degi, þó að það sé bara ræktin eða jafnvel ekki nema það að bera á mig krem eða nota andlitsmaska.
Bezt finnst mér þó að setjast í ró og næði inn á kaffihús, fá mér kaffibolla helst þá cafe latte, hlusta á tónlist, lesa blöðin eða hanga í tölvunni og vafra um á netinu.

#5 Ég elska bæði tónlist og dans. Það meikar sens því tónlist og dans fylgjast að.
Ég byrjaði að æfa dans um 3 ára aldur með frænda mínum, samkvæmisdansa en hætti í þeim þegar ég var 6 ára því ég þorði ekki að dansa með öðrum strák. Var mjög hrædd við stráka á þessum aldri. Þá byrjaði ég í jazzballett og stundaði það þangað til ég var 17 ára. Síðan þá er ég búin að taka mér (of) langa pásu og er ég því komin með vott af fráhvarfseinkennum. Hef bara stundað ræktina á meðan. Ég hygg þó á það að byrja í magadansi annaðhvort úti á Ítalíu eða þegar ég byrja í háskólanum næsta haust. Ástæðan fyrir því að ég er ekki byrjuð í magadansi er sú að mamma var hrædd um að ég yrði ólétt og ég vildi ekki gera alveg út af við hana og mér fannst það reyndar alveg rétt af henni að vera hrædd því ég vildi sjálf ekki enda ólétt og í sambúð 18 eða 19 ára. Ef ekki væri fyrir bæði dans og tónlist þá væri ég örugglega dauð núna eða inná geðdeild. :)

..ég klukka:
Helgu - http://helgamaria.blogspot.com
Björgu - http://bjorgg.blogspot.com
Ástu - http://astaogbirgitta.blogspot.com
Elín - http://kuntur.blogspot.com
Bryndísi - http://blog.central.is/theboobies/

crazy stelpukvöld núna - koddaslagur, ljósblámynd og popp..

out

4 Comments:

Blogger Helga said...

Já þetta vorum við í gær, svona gerum við þegar við hittumst :)

12:38 PM  
Blogger Heimir said...

Ein smurning! hvað er þetta klukk dæmi ?

Yeimir

4:37 PM  
Blogger Maze said...

Heh sounds like fun
...skil ekki alveg sambandið milli magadans og þess að vera ólétt?

8:05 PM  
Blogger Birgitta Lind said...

hehe, skil það:) ..sko það er talið að maður sé meira frjór þegar maður stundar magadans. dansinn styrkir svo vel þetta móðurlífssvæði. mjög sniðugt og gaman. athugið þetta stelpur :)

8:29 PM  

Post a Comment

<< Home