Monday, May 29, 2006

Svona var ég nett hress á júróvisjon.. ásamt Kristbjörgu :) brjálað stuð!

Er búin að setja nokkrir myndir sem voru teknar núna í maí.. fyrir utan þær sem eru inná týndu vélinni minni :(
Svo er ég á leiðinni heim 7. júní (ekki 6.) þannig að ég býst við hörku djammi helgina þar eftir með ykkur öllum ;)

Friday, May 26, 2006

Eurovision!

Já, Eurovision var ágætt en laugardagskvöldið var snilld.. fyrir utan myndavéla missi.. hef aldrei verið jafn sár á ævinni og skil ekki hvernig ég fór að því.. held að e-r hafi farið í vasann minn og rænt henni.. hef lent í svoleiðis áður nebbla :(
Anyways.. kvöldið var kúl. Fórum í party til Daða og Andra (ég, Bryndís og Unnur-systir Bryndísar).. Þemað var "ljót föt".. en þar sem ég er bara með "flotta" fataskápinn minn hér í DK þá ákvað ég bara að mæta með leggings og vera soldið 80s.. það var allt í lagi.. svo var bara drukkið smá bjór og vodka og svo var maður bara allt í einu kominn í bæinn.. (mér leiðist svo að skrifa svona smáatriða færslur af djömmum) :)
Svo kíktum við Bryndís á Ideal bar á 80s kvöld á miðvikudagskvöldið. "Vinur" okkar var að spila eða þ.e.a.s bróðir vinar okkar.. mjög skemmtilegt en samt ekkert það langt djam fannst mér.. hittum svo e-ja útlendinga í lokin og þeir splæstu á okkur KFC sem var alveg nett gott þó að ég fýli voða lítið KFC.. en Bryndís fékk nebbla afslátt þannig að við létum vaða :)
Svo er kannski bara smá djamm í kvöld og grill og allskonar stuð á næstunni.. rosalega gott að vera svona í fríi.. geri ekkert annað en að hanga á kaffihúsum, skoða í búðir, horfa á sjónvarpið og djamma ;)
Svo er plönuð heimkoma þann 6. júní.. er orðin pínu spennt :)
Langar pínu heim og pínu að vera hér.. væri til í að fara heim og koma svo aftur en held að ég haldi mig bara heima í sumar og vinni smá, hangi á austurvelli og fari í sumarbústað.. mér finnst sumurin heima alltaf snilld! Næsta sumar verður bara DK og allt sem því fylgir.. helst Berlín líka..
(Wrap it up)..... hmm... já..
Hlakka til að sjá ykkur ;***

Wednesday, May 10, 2006

Ferðin til UK var snilld!
Ég fór reyntar beint frá Gatwick til Bermingham. Þar tók frænka mín á móti mér og við tókum lest heim til hennar (þau búa í Kings Norton). Þar var vel tekið á móti mér. Frænkur mínar hlupu alveg til mín og knúsuðu mig og svo var búið að kríta fyrir utan húsið mynd af mér og boðið mig velkomna ;)
Tíminn leið samt rosa hratt.. matarboð, kaffiboð, út að borða, verzlunarferðir, skoðunarferðir, tónlist og ýmsar umræður sem stóðu oftast fram á nótt, gerði það að verkum. Svo var alltaf vaknað frekar snemma (kannski ekki ég) því það voru náttla börn á heimilinu (og ég er ekkert voða vön því). Það var alltaf pínu erfitt að vaka svona lengi öll kvöldin og vakna alltaf frekar snemma.. skil ekki ennþá hvernig frænka mín fer að því og dáist sko virkilega af henni fyrir að geta það :)
Á sunnudeginum var svo kaffiboðið og þá mætti Dennis (maður frænku minnar sem er því miður dáin), Ellen og Atli frændsystkini mín sem ég hitta ekkert af því þau búa úti í UK með pabba sínum og Lisa kærastan hans Atla. Hef alltaf viljað vera í sambandi við þau og fannst því æðislegt að hitta þau öll. Atli ætlar svo að kíkja til Íslands með Georg bróðir sínum í september og þá er plan að djamma með honum.. sína honum mína hlið af Reykjavík ;)

Svo fór ég til London á mánudeginum. Mjög sérstakt að skoða London í fyrsta skipti og vera alein. Var frekar stressuð fyrst og var pínu hrædd um að týnast en þetta bjargaðist allt saman. Fór bara á Oxford street og fékk mér svo kaffibolla og rölti svo í Hyde park og sat þar í smá stund. Keyrðum i gegnum London í rútunni sem ég tók frá Birmingham þannig að ég sá Buckingham palace og margt fleira.
Anyway.. þetta ar yndisleg ferð :)

Svo er ég bara komin aftur til Køben og veðrið er líka æðsilegt hér. Ætla bara að fara að leita að vinnu á morgun og kíkja í einhvern garð með Bryndísi og við ætlum að liggja í sólinni með bjór og virkilega njóta lífsins :D

Hafið það gott ;*

Wednesday, May 03, 2006

London baby

Er að fara til London á morgun :)
Verð reyndar bara þar í ca 2 daga sem er fínt.. fer til frænku minnar sem býr núna í Birmingham. Hlakka til að hitta þau öll :)
Segi ykkur svo frá því ævintýri seinna.. hvernig ég rata um London alein.. ;)
Er svo að fá nýtt símanúmer á eftir.. sendi ykkur það eða e-ð :)

Annars er geðveikur hiti hérna í dk.. ég er sko að stikna.. langar helst ekki að þurfa að vera í fötum. Spáin ssegir 20 stiga hiti en akkurat núna trúi ég að það sé heitara.. og það er e-ð svipað í London.. djö hvað það er nice að vera ekki að vinna í augnablikinu :D

B;*