Friday, May 26, 2006

Eurovision!

Já, Eurovision var ágætt en laugardagskvöldið var snilld.. fyrir utan myndavéla missi.. hef aldrei verið jafn sár á ævinni og skil ekki hvernig ég fór að því.. held að e-r hafi farið í vasann minn og rænt henni.. hef lent í svoleiðis áður nebbla :(
Anyways.. kvöldið var kúl. Fórum í party til Daða og Andra (ég, Bryndís og Unnur-systir Bryndísar).. Þemað var "ljót föt".. en þar sem ég er bara með "flotta" fataskápinn minn hér í DK þá ákvað ég bara að mæta með leggings og vera soldið 80s.. það var allt í lagi.. svo var bara drukkið smá bjór og vodka og svo var maður bara allt í einu kominn í bæinn.. (mér leiðist svo að skrifa svona smáatriða færslur af djömmum) :)
Svo kíktum við Bryndís á Ideal bar á 80s kvöld á miðvikudagskvöldið. "Vinur" okkar var að spila eða þ.e.a.s bróðir vinar okkar.. mjög skemmtilegt en samt ekkert það langt djam fannst mér.. hittum svo e-ja útlendinga í lokin og þeir splæstu á okkur KFC sem var alveg nett gott þó að ég fýli voða lítið KFC.. en Bryndís fékk nebbla afslátt þannig að við létum vaða :)
Svo er kannski bara smá djamm í kvöld og grill og allskonar stuð á næstunni.. rosalega gott að vera svona í fríi.. geri ekkert annað en að hanga á kaffihúsum, skoða í búðir, horfa á sjónvarpið og djamma ;)
Svo er plönuð heimkoma þann 6. júní.. er orðin pínu spennt :)
Langar pínu heim og pínu að vera hér.. væri til í að fara heim og koma svo aftur en held að ég haldi mig bara heima í sumar og vinni smá, hangi á austurvelli og fari í sumarbústað.. mér finnst sumurin heima alltaf snilld! Næsta sumar verður bara DK og allt sem því fylgir.. helst Berlín líka..
(Wrap it up)..... hmm... já..
Hlakka til að sjá ykkur ;***

0 Comments:

Post a Comment

<< Home