Hóhóhó!

Það fer hver að verða síðastur að sjá íbúðina okkar á Ránargötu 9. Vinsamlegast boðið komu ykkar í síma 5617127. Flutningarnir eru áætlaðir á milli jóla og nýárs.
Annars er bara það sama að frétta. Vinna, sofa, borða og djamma.... allt nema að læra.. muhahaha.
Vonum að ykkur öllum hafi samt gengið vel í prófunum (og í þeim sem eftir eru).
Tékkið líka á þessum leik.. hann er awesome! >>Hangaroo
Vinnuslúður:
- Við höfum enn ekki birst í Innlit/Útlit, fyrir þá sem hafa verið að bíða spenntir eftir því. Gerðum ráð fyrir því að við yrðum í sama þætti og Jónína nærbuxnalausa en því miður komumst við ekki að í þeim þætti.
- Maður hringdi í 118 í dag í öngum sínum og bað um neyðarnúmer tannlækna. Ástæðan var sú að hann hafði misst út úr sér fölsku tennurnar sínur og þær hafa víst verið ómótstæðilegar í augum Snata, því hann var ekki lengi að ná þeim og háma þær í sig.*slef*. Ef þetta kallast ekki neið þá vitum við ekki hvað...
- Litlu-jólin verða haldin þann 20. desember. Allir bíða spenntir eftir pakkanum sínum og starfsfólk talar ekki um annað þessa dagana....þótt það megi nú aldrei gleyma tíðarhvarfs umræðunum..
...já, þetta var það helsta :)
Annars viljum við bara segja gleðileg jól og Já- er svarið!...
Ásta og Birgitta jólastelpur ;*


3 Comments:
Ég hefði nú heldur hringt í dýralækni en neyðarnúmer tannlækna :D
Tjellinn er kominn í frí!
Hehe, já nákvæmlega!! :)
..og til hamingju með að hafa klárað prófin! ;D
Er það þá bara kreisí djamm fram að jólum?? ;)
já sammála Mása, hvað getur tannlæknir gert í því að snati borðaði tennur eiganda síns hahahaha :) Loksins búin í prófunum, en því miður tekur við' vinna :(
Post a Comment
<< Home