"How to make love like a porn star"

...heitir bókin sem ég er að lesa. Fyrir þá sem ekki vita er þetta ævisaga Jennu Jameson, klámmyndaleikonu sem fólk ætti að hafa séð í ýmsum karltímaritum og klámmyndum (ef fólk horfir á svoleiðis).
Anyway... Málið er að ég var í vinnunni í gær. Var með bókina með mér og var að lesa hana þegar yfirmaðurinn minn kemur og spyr hvað ég sé að lesa. Segi honum það og hann segir þetta vera "interesting choise of literature".
Svo var ég að vinna núna í kvöld og hann kemur aftur til mín og spyr mig allt í einu af hverju ég hafi eigilega ákveðið að kaupa og lesa þessa bók í staðinn fyrir e-ð annað. Þá dettur mér bara ekkert í hug (hafði ekki spáð í því svoleiðis) nema mér fundust myndirnar af henni mjög flottar og skemmtilegar. Hann hlær e-ð út í loftið og segir að það hlyti að vera e-ð sem tengdi mig við bókina fyrst að ég hefði keypt hana. Ég veit ekki, en er það kannski rétt sem hann segir, að maður velji sér lesefni sem tengist manni sjálfum að einhverju leiti?
Forvitni er samt eflaust ein ástæða.
Kannski hugsaði ég:
Klámstjarna = kynlíf, peningar, karlmenn (reyndar ógeðslegir) fallegir líkamar, daður, dans (strippið)... allt sem ég fíla og líklega ástæða fyrir áhuga mínum á þessari bók..
Hins vegar fíla ég ekki allt dóp ruglið á þeim, strippara skór eru ljótir! og flest fötin líka, tattooin, og öll óreglan svo eitthvað sé nefnt.
En þessi gella, þó hún hafi lifað frekar spes lífi, þá er hún samt frekar svona... "klár" en jú, reyndar líka mjög heimsk... Hún hefur allavega gengið í gegnum marga hluti sem manni langar ekkert voðalega mikið að ganga í gegnum.
Svo btw held ég að gaurinn í klámmyndinni sem við gáfum Hauk í afmælisgjöf (og horfðum svo öll á í afmælinu) sem við kölluðum alltaf "Snake" sé giftur henni í dag, sem mér finnst mega fyndið því hann er hreint og beint ógeð..
Við erum hluta, ef ekki alla ævi að leita og læra á sjálf okkur. Með því að lesa hluti lærum við meira á sjálf okkur (þó að það hljómi kannski heimskulega). Ég hef lært meira inn á sjálfa mig eftir að hafa lesið þessa bók (þó svo niðurstaðan hér sé ekki alveg fullkomin því ég veit í raun ekkert hvort ég hafi beint lært þetta allt bara af þessari bók): hvað ég vil ekki vinna við, hvað mér finnst fallegt og sexy, í hvernig umhverfi maður á ekki að ala börnin sín, hvað fjölskyldubönd eru endalaust mikilvæg, hversu vandvirkur maður þarf að vera í að velja sér maka og ýmsa fleiri frekar (ó)merkilega hluti.
Varð bara að deila þessum vangaveltum með ykkur. Þessi spurning og það sem hann sagði náði alveg allri athyglinni minni svo ég verð að koma þessu frá mér svo ég geti nú sofnað. Ætla samt að velta þessu aðeins lengur fyrir mér...
Er ekki enn komin með svarið af hverju ég keypti mér þessa bók til að byrja með....


7 Comments:
góð færsla!! Skemmtilegar pælingar. Það er erfitt að vera really really really really ridiculously good looking eins og við.. I know.. *andvarp*
Mjög skemmtileg færsla.
En vá hvað segir það um mig ef ég nenni ekki að lesa annað en dagblöð og skólabækur....
kannski er ég bara búinn að leysa lífsgátuna og þarf ekki að standa í þessari leit ....nehhh
En hvað segir það okkur um yfirmann þinn að hann hafi svona mikinn áhuga á því að þú vitir að það sem maður les segi ýmislegt um mann. Er hann Jesús?
Hehe :) ..maður gæti allavega sagt að hann líkist Jesús pínu þessi yfirmaður minn...
Var samt einmitt að hugsa það þegar ég var að skrifa að skólabækurnar teljast ekki með.. en þ´r verða eigilega að gilda bara smá. Þú ert náttla t.d að læra læknisfræði af því þér langar það.. þig langar að verða læknir og þannig ertu að komast nær því sem þú vilt vera með að læra og lesa í þeim..bleh..
Gæti svo sem verið að þú sért búinn að leysa lífsgátuna :)
Og Steini, já það er mjög erfitt að vera svona really really ridiculously good looking ;) þurfum að stofna svona stuðningshóp fyrir svona fólk eins og okkur...
Þetta var já mjög skemmtileg færsla! Var þetta ekki Birgitta sem var að skrifa? Það er stundum svo erfitt að vita hvor ykkar er að blogga! :)
(bara 12 dagar í mig)
Júmm, þetta var ég.. gleymi alltaf að merkja nafnið mitt en af því ásta bloggar eigilega ekki né kommentar þá gleymi ég alltaf að við erum báðar með síðuna :)
There are milions of books that show paths. Just a matter of choosing the right ones, that really hit you like rockets inside. 'Agaetis byrjun thò ;) r.
jamm, þessi bók á eftir að koma að góðum notum á meðan ég er á lífi.. trúið mér ;D
Post a Comment
<< Home