Friday, November 11, 2005

"Party time"

Horfði á Kastljós í gær (sem ég geri aldrei því fo**ing stöð 1 er alltaf í rugli hjá okkur) en það skiptir svo sem engu heldur fannst mér Kári Stefánsson algjör snilld.. djöfull var hann fyndinn!

Horfði svo á endursýninguna af "So You Think You Can Dance".. eini þátturinn sem ég get ekki misst af, þetta er allt of flott og skemmtilegt.
Jonnis og Sandra duttu út.. úff, hann er svo sætur og mikill kroppur svo ég varð hálf fúl..

Mér finnst gaman þegar fólk hringir og biður t.d um Elko í 118.
Kúnninn: "Geturu gefið mér númerið hjá Elko"
Ég: "Viltu númerið hjá þeim í Kópavoginum"
Kúnninn: "NEI!!! í Smáralind!"
elska þetta blessaða fólk..

Í kvöld ætlum við stelpurnar að elda heima hjá Helgu. Hún er víst ein heima. Ætlum að elda einhverja unaðslega máltíð og hafa eftirrétt líka. Smá dekur. Það verður stuð.
Ætlum svo í party hjá Heimi og kannski í bæinn eftir það.. sjáum til hvert stemmarinn leiðir okkur...

Svo á mánudaginn er seinasti Ítölsku tíminn minn. Eigum að mæta með e-ð góðgæti og ég er að spá í að mæta með Tíramasjúúú ;p ..svo náttla tölum við ítölsku allan tímann.. :)
Einnig eru skemmtilegir gestir heima hjá okkur Ástu sem hafa verið þar í þó nokkurn tíma sem verða sem betur fer fjarlægðir á mánudaginn.

Birgitta ;*

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Talandi um Kastljós. Þið hefðuð átt að sjá konuna sem vara að tala um heilun og frumur. Aumingja konan vissi ekki hvort hún var að koma eða fara. Endilega ef þið eruð ekki búin að sjá þetta kíkið á það á þessari slóð: http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4270020

8:21 PM  
Anonymous Anonymous said...

hvaða gestir..forvitin vill vita..einhverjar pöddur?

6:10 PM  
Blogger Birgitta Lind said...

Ég missti víst af henni..
Get ekki horft á þetta í vinnunni.. drasl.. Tékka á þessu þegar ég kem heim :)

Jaáá, ljótar pöddur! Silfurskottur..þær geta lifað í fokking 5 ár! ugh.. en vonandi hafa þær allar yfirgefið okkur núna :)

10:49 AM  
Anonymous Anonymous said...

hehe, oj!! en geggjad ad tid seud ad undirbua ykkur fyrir italiu! Hvenaer a svo ad fara? Kannski madur nai ad kikja vid hja ykkur!

8:19 PM  
Anonymous Anonymous said...

ja vid erum einmitt med einn svona ''so you think you can dance'' heitir bara
''vild med dans'':) og er allveg sammala ther, mjog skemmtilegir thættir, otrulegt hvad gaurarnir eru fljotir ad na thessu ollu saman, bara eins og professional eftir nokkrar vikur. Var einmitt urslita thatturinn a fost. David og vicky unnu og nu er thessi david ordin eftirsottasti madurinn herna i køben, i ollum sed og heyrt og svona ;) kalladur david beckham 2 ;)

10:02 PM  

Post a Comment

<< Home