Thursday, July 27, 2006

okei...staðreyndir...

-ég er komin með nett ógeð af vinnunni minni...
-er farin að hlakka til þess að blanda mojitos á morgun og skenkja rauðvíni og hvítvíni..
-hlakka einnig til þess að fara í þessa veizlu með Kristjönu til þess að skoða úrvalið á strákum... jámmmm...
-var að fá gefins dagbók, merkta landspítalanum. hún er ágæt en ég veit ekki til hvers ég var að hirða hana. kannski af því að mér leiðist svo hérna...
-allar hinar staðreyndirnar sem ég er að hugsa er svo boring þannig að ég er hætt við að skrifa þær hérna..

planið er svo að halda afmælið mitt uppí sumarbústað.. helgina 18.-20. ágúst..
ég veit að fólk verður bara e-ð "what!?" en mig langar að hafa afmæli áður en Helga og Björg fara út og þær taka þarna frá seinustu helgina í ágúst fyrir kveðjuparty þannig að ég held það bara þarna... er samt enn að pæla í þessu... :/

B;*

Monday, July 24, 2006





QuizGalaxy!
'What will your obituary say?' at QuizGalaxy.com


Laugardagurinn var geðveikur!!

Austurvöllur = bjór, spil, sól og Kolaportið...
Smá skokk og tekið til..
Humarveizla!
Party hjá Reynsa.. mikið drukkið..
Bærinn! bara crazy..
Sunnudagurinn fór svo ekki í mikið annað en að liggja uppí rúmi :)
Ég, Kristjana og Raffi fórum reyndar á Brennsluna, eftir góða gistingu hjá Hauki..takk, og fengum okkur nettan brunch.. hef ekki fengið svona góðan brunch áður..
-Hrærð egg, bacon, sveppir, kartöfluteningar, ristað brauð, kálblað(hehe)og svo amerískar pönnukökur með sírópi!
..ekki slæmt þetta... :D

Nýjar myndir!


Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir --

[noun]:

A dance involving little to no clothing



'How will you be defined in the dictionary?' at QuizGalaxy.com

Wednesday, July 19, 2006

Jæja börnin góð..

Var að setja inn myndir frá afmælinu hennar Dísu..
Geggjaðar myndir sko! ;)

Er að fara að klífa Esjuna svo á morgun. Það verður spennandi ævintýri.
Ég fæ að elda lasagna í kvöld... made from scratc takk fyrir! til að hafa kolvetni í líkamanum fyrir átökin.
Ég og mamma og fleiri erum sko að hita upp fyrir hina miklu Heklu för þann 12. ágúst.
Ég ætla rétt að vona að ég deyji ekki á leiðinni en ég hef nú frekar mikla trú á mér þannig að ég býst eigilega ekkert við því.

Enjoy...
B ;*

Tuesday, July 18, 2006

haha! :) fann þetta inn á síðunni hans Dr. Gunna...

Lata stelpan er ein af þessum barnabókum sem ég man eftir úr æsku. Tékknesk að uppruna, flottar myndir og einfaldur söguþráður: Stelpa er löt og leiðinleg, kötturinn hennar og húsgögnin gera uppreisn og neyða stelpuna til að taka til og fara í bað. Mér fannst þetta bráðskemmtileg bók og keypti það alveg að það væri betra að vera hreinn og með hreint í kringum sig heldur en að liggja önugur í drullunni. En nei, hvað var ég að spá? Auðvitað var þetta ekki svona einfalt. Auðvitað voru vondar karlrembur með bókinni að menga hugi smábarna með STAÐALÍMYNDUM UM STÖÐU KYNJANNA. "Kötturinn hennar neyðir hana í meikóver og eftir það breytist hún í ofurhúsmóður," segja nokkrar bráðskarpar konur sem hafa nú stofnað Lötu stelpuna, vef um kynjajafnrétti. Ég biðst afsökunar á að hafa haft gaman af þessari andlegu nauðgun á öllum kvenmönnum veraldarinnar og mun ekki tala oftar við foreldra mína fyrir að hafa troðið þessum viðbjóði upp á mig. Ég ætla auðvitað ekki að falla í sömu gryfju og mun hafa bókabrennu á bókum sonar míns. Þær bækur sem ég brenni eru m.a.:
Birnirnir þrír - Staðalímynd. Afhverju eldaði bangsapabbi ekki grautinn?

Láki - Afhverju situr pabbinn, reykir pípu og les blað á meðan mamman býr til rauðgraut? Hrópleg niðurlæging á öllu kvenfólki.

Stúfur - Enn á ný er það kona sem eldar graut. Geta karlar ekki eldað graut í þessum bókum? Viðurstyggilegt.


Stubbur - "Mamma þvoði og þvoði" - Er þessum andstyggilegu karlrembum hjá bókaútgáfunni Björk alvara? Ég legg til að farið verði í mótmælasvelti við höfuðstöðvarnar þar til þessum viðbjóðslegu árásum á barnshugina verður hætt.

Bubbi byggir - afhverju byggir Bubba ekki frekar?

Hr. Æðislegur - Hvar er Frú Æðisleg?

Og svo það viðurstyggilegasta af öllu viðurstyggilegu:

Kata. Kata kanína, ógeðsleg staðlímynd af hinni undirokuðu húsmóður sem þrælar sér út fyrir krakka og ógeðslega karlkanínu.

Öllu þessu ógeði mun ég kveikja í í garðinum. Sonurinn verður neyddur til að horfa á og ég mun öskra vel valda kafla upp úr Píkutorfunni á meðan logarnir eyðileggja viðbjóðinn.
---
Að endingu legg ég til nýtt og betra heiti á það sem sumir kalla "trukkalessa" - Samkynhneigð kona sem keyrir vöruflutningabíl.

Thursday, July 13, 2006

Friday, July 07, 2006

Veðrið er svo fallegt!
Nákvamlega svona vil ég hafa sumrin á Íslandi! ...
Sitja á Austurvelli og fá (mína fyrstu) stöðumælasekt í leiðinni...
Það kallast að lifa lífinu... ;)

Takk líka Gyltur fyrir yndislegt gærkvöld ;*