Wednesday, June 28, 2006

Er loksins að fara út á land!! :)
Ég og Helga ætlum að skella okkur á Humarhátíð á Höfn í Hornafirði! :D
Oh, hvað það verður yndislegt.. Humar, hvítvín og stuð ;)
Fáum að gista hjá Sigga (bróður Helgu) og Dóru (konunni hans) og fáum svo að sjá litlu sætu Sögu og náttla Hófí og Ísold :)

Annars var helgin náttla bara snilld eins og alltaf! :)
Var svo alveg búin á sunnudeginum og fór bara í bíó með Björgu.. mjög fínn endir á helginni :)

Er svo loksins búin að setja myndirnar frá maí mánuðinum í Danmörku.. ef þið hafið áhuga á að skoða ;)

Myndir

Tuesday, June 20, 2006

Helgin var amazing!
Vinna á KB, matarboð hjá Heru og djamm.. rosa stuð!
Missti reyndar alveg af 17.júni fannst mér því ég var bara inná Kaffibarnum allan daginn, en það gerir ekkert til.. ágætis dagur þrátt fyrir það :)
Ekkert mikið meira að segja frá þeirri helgi svosem..
Samt alltaf smá skrýtið þegar maður fer frá heimili sínu á föstudegi og kemur svo heim til sín aftur seint á sunnudegi.. :)

Svo er bara 2. vinnuvikan mín byrjuð. Fínasta vinna.. fáir sætir læknar en samt alveg einn og einn sem maður nýtur þess að horfa á ;)
Er bara mjög sátt við að hafa fengið mér þessa vinnu...



Munið svo að haga ykkur vel!

B;*

Monday, June 12, 2006

Jæja þá er ég loksins komin heim!! :D
Helgin var alveg dúndur! Kíkti út alla dagana og þeir voru allir skemmtilegir! Pínu vesen náttla fyrir mig og Kristjönu að komast heim en við redduðum því nokkurn veginn alla dagana.. náðum að crasha hjá Hauki á laugardagskvöldið en hin kvöldin var náð að komast uppí Grafarvog...
Vil bara þakka fyrir gott djamm og ótrúlega gaman að sjá ykkur öll aftur! :D

Var svo að byrja í nýrri vinnu í dag.. á Landsspítalanum í Fossvogi sem gjaldkeri.. voða spennandi..
Ætla svo að vinna annað hvort á Kaffibarnum eða í World Class um helgar.. sem sagt annaðhvort að umgangast "treflana" eða "hnakkana" eins og Gillzenegger skilgreinir þetta... þurfti að bíða út í bíl í morgun áður en ég átti að mæta í vinnuna og ákvað því að glugga aðeins í þessa mögnuðu bók ;) áhugavert að gægjast aðeins í heim hnakkanna.. sérstaklega þar sem bróðir minn er á góðri leið í þann heim...
en nóg um það..
full vinnuvika framundan og rosa stuð og svo bara 17. júní.. Ísland er awesome.....

B;*