Monday, March 27, 2006

Hæ elskurnar minar

Vá hvað það er hrikalega langt síðan ég bloggaði..
Er bara ekki búin að vera í stuði :)
Brjálað að gera í vinnunni og seinasta laugardag var ég næstum farin að gráta.. ég var ekkert smá stressuð.. en ég lifði það af og komst heil heim, lagði mig.. vaknaði svo og sá allt í einu manneskju inní herberginu mínu og brá ekkert smá (eins og þegar ég sá dansandi stelpu hjá kommóðunni minni á Hagamelnum) en í þetta sinn var þetta bara Bryndís :) Við gláptum aðeins á sjónvarpið, hlustuðum á tónlist og drukkum bjór og svo hringdi ég á taxa og pantaði leigubíl og talaði bara dönsku ;D ..en hann kom samt ekki þannig að við fórum uppá hraðbrautina og húkkuðum taxa þar. Það var mjöög kalt þetta laugardagskvöld.. og akkurat kl 12 þá nótt breyttist í sumartíma þannig að þegar hún varð 12 þá varð hún í raun 1 sem er ágætt.. þá er bjartara lengur hérna og svona :)
Allavega.. fórum á stúdentabarinn þar sem skólinn sem stelpurnar eru í var með (loka)ball. Tónlistin var frekar leiðinleg en það var æðislegt náttla að hitta þær!! :D ..þær voru í nettu stuði en vildu fara að koma sér heim um 3 leytið (sem ég skil vel ef maður þarf að taka lest!). Ég og Bryndís ákváðum að skreppa þá á Lárus löggu sem var virkilega gaman. Dönsuðum og ég pantaði svo 4 skot handa okkur og þá fengum við 8 (2 fyrir 1) sem ég vissi ekki af.. við píndum það í okkur og dönsuðum meir :) á heimleiðinni hitti ég Gústaf Hannibal, vin minn sem býr núna í Slóveníu eða e-ð, og vini hans. En talaði bara smá við þá og fór svo heim.. það var svo kalt! :/ ..samt komið sumar...

Þennan næstum mánuð sem ég er ekki búin að skrifa neitt er ég búin að gera alveg ýmislegt.. þó aðalega ég sé búin að vera að vinna..
Fann alveg æðislegt kaffihús, hevy flott og kosy og það er hægt að vera á netinu þar (ekki mjög algengt hérna í dk) og það er fótboltaspil sem ég og Bryndís förum oft í :D
Er búin að verzla, fara á kaffihús, dansa, skokka, horfa á sjónvarpið, skoða mig um, fara í bíó, fara á opnun á nýjum skemmtistað sem Guðný vinkona mín var að byrja að vinna á, fá kennitölu og skattkort, finna fullt af flottum búðum, taka til, djamma á A-bar (í fyrsta sinn), læra meiri dönsku, fara í party, elda góðan mat, fara út að borða, finna Nettó og Aldo (virkilega ódýrt þar) og fullt meir :)
Svo í næstu viku kemur Atli frændi :) ..ætla að sækja hann á flugvöllinn (eins gott að ég fái frí í vinnunni) og svo bara sýna honum bæinn og svo kannski fara út að borða eða elda eða e-ð skemmtilegt :)
8. apríl ætlum við svo til Humlebæk til stelpnanna og vera með þeim á seinasta ballinu :) hlakka ekkert smá til en er samt sár að þær séu að fara... :(
Svo eftir hva, 3 vikur mar verður kreizí party í Køben!! Vá hvað ég hlakka til að fá ykkur öll! :D
..hálf ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.. ég er ekki búin að fylgjast með mánaðadögunum núna í langan tíma.. en það er bara gaman.. :)
En hafið það gott fallega fólk ;*

Saturday, March 04, 2006

Eruði að grínast með killer viku!? Ekkert smá erfið vinnuvika! ...

Byrjaði í Zöru á mánudaginn eins og e-jir vita.. Mjög skemmtileg vinna, svona "stress í gangi og þú stoppar ekki allan daginn" vinna sem er akkurat fyrir mig. Tíminn flýgur alltaf áfram og þú ert bara komin heim áður en þú veist af. Fékk þessa helgi frí (sem betur fer) sem þýðir samt að ég mun vera að vinna næstu tvær helgar. Þetta er svona þriggja vikna program, þannig stundum áttu frí á fimmtudegi, stundum þriðjudegi, stundum mætiru fyrr og stundum seinna en oftast mæti ég samt frá 10 til 18:30. Svo er ég alla þriðjudaga til svona 8 eða 10 því þá þurfum við að fara yfir allt í búðinni og merkja og skrá allt eftir verðum til þess að það sjáist hvað þau eru að selja og hvort að það stemmi ekki allt og e-ð blablabla.. Vissi alls ekki að þetta væri svona mikil vinna. Fannst þetta alltaf bara vera búð og ekkert annað. En þetta er svo miklu meira en búð skal ég segja ykkur. Svo eru svona þúsund reglur sem maður þarf að læra. Voða stíft og strangt allt saman sem er allt bara í fínu lagi því það er ekkert af því sem ég a erfitt með.. bara e-ð sem mér er í blóð borið :)
Versta við fyrstu vikuna er vinnuálagið og álagið á fallegu fæturna mína. Þeir eru svo aumir eftir að standa og hlaupa í 9-11 tíma á dag. Þeir eru endalaust að mótmæla og ég held að kannski á miðvikudaginn hafi blóðflæðið næstum stoppað uppí heilann minn. Ég gat ekki hugsað og ég var eins og ég væri bara lömuð og var mjög sljó. Var þoglumælt og rotaðist yfirleitt um leið og ég snerti rúmið (ekki koddann)..
En það líður allt saman hjá á næstunni og þá verður rosa gaman í vinnunni og þið megið öll koma að heimsækja mig :D Ég vinn "niðri" í Woman deildinni..

En nóg um það... Depeche mode tónleikarnir voru hreinasta snilld!! Þetta voru flottustu tónleikar sem ég hef séð! og það var svo gaman.. Söngvarinn náttla ekkert smá heitur og röddinn hans er svo geðveik að maður verður bara hálf blautur við að hlusta ;) ..nee, samt ekki kannski alveg en röddinn hans er samt awesome.. sexy..
Gerði mest lítið eftir tónleikana.. ekkert sem er þess virði að skrifa.. eða ég hitti bara Kobba, Helga og Dodda en þeir voru svo fokking waisted þannig að það var lítið gert. Endaði bara með þeim á KFC þar sem þeir átu e-ð ógeð og svo á e-jum Kebab stað þar sem þeir átu líka e-ð. Svaka stuð.. svo fór ég bara heim..
En þessir tónleikar.... Vá!! kemst ekki yfir það hvað þeir voru góðir. Líka bara stemmningin í Parken. Ótrúlegt alveg! :)

Svo í gær hitti ég Áslaugu sem var í Kvennó (var í 4. bekk þegar ég/við vorum í 1. bekk) og vinkonur hennar og vini sem voru að heimsækja hana og kærastann hennar (sem er btw sonur Dísu sem átti Tíu dropa, sem ég var að vinna á..)
Fór með Bryndísi með mer og hitti þau á e-jum mexíkóskum stað þar seem þau sátu og voru að renna niður þúsund kokteilum. Langaði frekar mikið í einn en ákvað að bíða eftir að við færum e-ð annað bara því þau voru akkurat að fara e-ð annað bráðlega. Fórum þá á Ideal bar (litla Vega) og svo seinna um kvöldið á Vega (stóra Vega).. Þar var spilað techno með brasilísku ívafi og á efri hæðinni var mest reggae tónlist. Við héldum okkur mest á efri hæðinni og dönsuðum við svona gömul lög sem maður hefur t.d heyrt með Fugees og Mary J. Blidge, en já bara gömlu útgáfurnar. Mjög gaman. Hey og eitt.. á Ideal bar varð ég mjög hissa, því við stóðum á barnum og vorum að panta okkur og þá heyri ég e-ð kunnulegt lag.. Þeir voru að spila Nasty boy (með Trabant fyrir þá sem ekki vita).. þvílík snilld :) og svo Björk beint eftir það...

Þetta er svona það helsta sem er búið að gerast hjá mér. Þar sem ég átti að fara heim yfir helgina og hugsa vel um fæturna á mér tók ég þá ákvörðun að fara bara í bíó í kvöld.. slaka aðeins á.. ég og Bryndís ætlum að fara að sjá Casanova.. Verð líka virkilega að taka til á morgun og og setja í allavega tvær vélar þannig að það er ágætt að taka sér einn frí dag fra djamminu.

Luv
Birgitta ;*