Sunday, April 23, 2006

Var að koma af kaffihúsi með Atla. Fengum gefins pizzu og svo kaffi latte. Mjög nice kaffihúsaferð :)
Gaurinn á kaffihúsinu var víst ekki búinn að opna (þó að hurðin væri opin uppá gátt) en bauð okkur samt inn og var geðveikt nice við okkur. Hann var bara þarna að spjalla við vin sinn og þeir voru með e-ja kubba sem voru alltaf að detta í gólfið. Ég og Atli vorum bara að spila backgammon og erum núna komin heim til að horfa á Prison Break..

Páskahelgin var snilld!
Helga, Mási, Árni og Steini komu og við gerðum alveg helling af hlutum. Aðalega djamm samt en einnig fórum við í Tívolíið, í bíó, í göngutúra, á kaffihús, í bæinn að verzla og út að borða :) Þetta var í fyrsta skiptið sem ég fór í Tívólíið og það var ekkert smá gaman! Fór loksins í rússibana sem fer í hringi og svo fórum við í Gyllta turninn sem var frekar scary þar sem ég er lofthrædd. Fannst það ekkert mál fyrst og dró Helgu með mér (hún er líka lofthrædd) og svo var ég komin upp þá var ég að fara að deyja :) En ég fór samt 2svar og er frekar stollt af mér ;)
Haukur hitti okkur svo í einn dag, fór í Tívolíið með okkur, á Hard Rock og svo á djammið..
Það var alveg yndislegt að hafa ykkur krakkar ;****

í fyrrakvöld (föstudagskvöldið) fórum við Atli í e-ð afmæli hjá Fredriksberg Centret. Það var alveg ágætt. Andri var að spila mjög góða tónlist þannig að ég var allavega ánægð. Þegar ég var að fara þá var búið að stela töskunni minni og hún hefur ekkert fundist. Er mjög sorgmædd yfir því en svona er lífið bara.
Fer svo að vinna á morgun í 5 daga og eftir það verður ekkert meiri Zara. Ég er svooo fegin yfir því! Þarf samt að fara að finna mér aðra vinnu sem er ekkert voða gaman en samt skárra en að vera í Zöru.
Ætla svo örugglega til Birmingham í heimsókn til frænku minnar og frænda svona 3. maí. Það verður gott að kíkja í heimsókn til þeirra. Hlakka mjög mikið til :)

Svo eru komnar apríl myndir inn..

B ;*

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Gleðilegt sumar elskan, leitt að heyra með töskuna þína.

9:28 PM  
Blogger BJÖRG said...

Hæhæ, ertu komin með nýja vinnu? Hvar ertu að fara að vinna? Já ekkert smá fúllt með töskuna þína... hata þjófa!!! og já gleðilegt sumar sæta!
:) sakna þín

2:08 PM  
Blogger Birgitta Lind said...

gleddilegt sumar sömuleidis elskurnar minar! ;D
nei, er ekki komin med nyja vinnu ennta.. ætla bara að fara að leita á föstudaginn.. ég varð bara að segja fyrst upp svo það mundi bara ekki vera of seint.. hafði aldrei tíma til að leita að vinnu á meðan ég vann þarna..
já, þjófar eru virkilega leiðinlegir.. svo voru aðalega pesónulegir munir þarna.. ekkert sem þjófurinn græddi á :/
sakna þín líka Björg ;* ..og ykkar allra.. hlakka til að koma heim :)

10:18 PM  

Post a Comment

<< Home